FBI rannsakar andlát Epsteins

Upphafsstafir Jeffrey Epstein utan á híbýlum hans í New York.
Upphafsstafir Jeffrey Epstein utan á híbýlum hans í New York. AFP

Alríkislögregla Bandaríkjanna rannsakar það sem virðist vera sjálfsvíg fjárfestisins og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá fangelsismálaskrifstofu dómsmálaráðuneytisins þar vestra.

Epstein fannst án lífsmarks í klefa sínum í Metropolitan betrunarstöðinni í New York í morgun og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi nokkru síðar.

Yfirlýsingin kemur í kjölfar þeirra spurninga sem vaknað hafa, um hvernig frægum fanga í strangri öryggisvörslu alríkisins, sem þegar hafði samkvæmt ákveðnum heimildum reynt að svipta sig lífi í síðasta mánuði, gæti tekist ætlunarverk sitt í annarri tilraun.

Epstein hafði verið ákærður fyrir skipu­lagt man­sal í vænd­is­skyni, en brotin eiga flest að hafa átt sér stað í glæsi­hýs­um hans á Man­hatt­an og í Flórída á árunum 2002 til 2005. Ep­stein á að hafa greitt stúlk­um stund­um nokk­ur hundruð dali fyr­ir kyn­mök, en fram kom í ákær­u að yngstu fórn­ar­lömb hans hafi verið allt niður í 14 ára göm­ul, og hafi hon­um verið það full­ljóst. Hann átti yfir höfði sér allt að 45 ára fang­elsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert