Purdue Pharma óskar eftir greiðslustöðvun

Höfuðstöðvar Purdue Pharma í Stamford, Connecticut.
Höfuðstöðvar Purdue Pharma í Stamford, Connecticut. AFP

Bandaríska lyfjafyrirtækið Purdue Pharma óskaði eftir greiðslu­stöðvun (Chap­ter 11) í gær en unnið er að dómsátt sem felur í sér að fyrirtækið muni greiða yfir 10 milljarða Bandaríkjadala í bætur vegna ópíóíðafaraldursins vestanhafs. 

Lyfjafyrirtækið framleiðir verkjalyfið OxyContin en talið er að lyfið eigi einna mestan hlut að máli í þeim faraldri fíknar sem geisað hefur í ríkjum Bandaríkjanna. Þúsundir lögsókna bíða fyrirtækisins um öll Bandaríkin.

Talið er að samkomulagið verði samþykkt af dómstól og með því verði hægt að meta virði Purdue áður en farið verður að greiða út bætur.

Yfir 400 þúsund manns hafa dáið úr ofskömmtun ópíóíðalyfja á sama tíma og lyfjaframleiðendur hafa rakað inn milljörðum dala í hagnað á sölu lyfjanna. Árið 2017 létust 47 þúsund Bandaríkjamenn af ofskömmtun ópíóíðalyfja, heróíns og fentanýl.

Pur­due Pharma, sem er í eigu Sackler-fjöl­skyld­unn­ar, gerði fyrstu dómsáttina í mars og var hún  við Okla­homa-ríki. 

Eign­ir Sackler-fjöl­skyld­unn­ar eru metn­ar á annan tug milljarða Bandaríkjadala. Fjöl­skyld­an hef­ur verið áber­andi í kast­ljósi fjöl­miðla vegna þeirra fjöl­mörgu dóms­mála sem hafa verið höfðuð að und­an­förnu. Líkt og fjallað hef­ur verið um á mbl.is hef­ur fjöl­skyld­an lagt háar fjár­hæðir í alls kon­ar menn­ing­ar­tengd mál­efni sem og vís­indastarf og mennt­un. Bæði bresk­ar og banda­rísk­ar stofn­an­ir hafa að und­an­förnu til­kynnt að þær séu hætt­ar að þiggja fé frá fjöl­skyld­unni eft­ir að hafa þegið frá þeim háar fjár­hæðir ára­tug­um sam­an. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert