Tugþúsundir japanskra björgunarmanna hafa unnið að því í gær og í dag að reyna að finna fólk á lífi í rústum húsa sem urðu illa úti vegna flóða, aurskriða og ofsavinds er fellibylurinn Hagibis gekk á land á laugardag. Fjörutíu og þrír hafa fundist látnir og að minnsta kosti sextán manns er saknað, samkvæmt fregnum japanskra fjölmiðla.
Shinzo Abe forsætisráðherra sagði í dag að björgunarmenn væru að gera sitt allra besta við leitina að og unnið yrði dag og nótt til þess að finna fólk á lífi.
Nokkuð mikil rigning hefur haft áhrif á björgunaraðgerðir og orðið til þess að hætta er á frekari aurskriðum, enda jarðvegurinn víða gjörsamlega gegnsósa. Ráðamenn hvetja fólk til þess að fylgjast vel með stöðunni og vera á varðbergi gagnvart skriðum og frekari flóðum nærri ám.
Úrkoman sem fylgdi Hagibis á einum sólarhring var á nokkrum stöðum meiri en samanlögð heildarúrkoma í Reykjavík er á meðalári, eða yfir 900 millimetrar. Elín Björg Jónasdóttir veðurfræðingur vekur athygli á þessu á Twitter-síðu sinni.
„Þegar loftslagssérfræðingar tala um aukna úrkomu í fellibyljum er ekki verið að ræða einhverjar skúradembur,“ skrifar hún.
Meðal ársúrkoma í Reykjavík eru tæpir 800mm. Það rigndi 942.5 mm á sólahring í Japan, í fellibylnum #Hagibis. Þegar loftslagsérfræðingar tala um aukna úrkomu í fellibyljum er ekki verið að ræða einhverjar skúradembur. https://t.co/G8t63D8Zin
— Elin Jonasdottir (@elinbjon) October 12, 2019