Trump segir daginn í dag „frábæran“ fyrir Floyd

Donald Trump við undirritunina í dag.
Donald Trump við undirritunina í dag. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti nefndi nafn George Floyds þegar hann skrifaði undir nýja skýrslu sem auðveldar litlum fyrirtækjum að fá lán. 

„Við sáum öll hvað gerðist í síðustu viku. Við getum ekki látið slíkt gerast. Vonandi lítur George Floyd núna niður og segir að það sem er nú að gerast sé magnað. Þetta er frábær dagur fyrir hann. Þetta er frábært fyrir alla,“ sagði Trump og bætti við: „Þetta er frábær dagur hvað varðar jafnrétti.“

Andlát Floyd hefur vakið upp  mikla reiði víða um heim. Þá hafa mót­mæli gegn kynþáttam­is­rétti og lög­reglu­of­beldi í Banda­ríkj­un­um staðið yfir um nokk­urt skeið í Banda­ríkj­un­um og víðar í heiminum. CNN greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert