Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að skólamáltíðir í boði breskra stjórnvalda, sem knattspyrnumaðurinn Marcus Rashford vakti athygli á að væru óviðundandi, væru „móðgandi“.
Johnson hét því að ríkisstjórn Breta myndi „gera allt sem við getum til að tryggja að ekkert barn verði svangt“ á meðan á útgöngubanni stendur í landinu.
Rashford, sem hefur verið ötull baráttumaður fyrir fríum skólamáltíðum síðan á síðasta ári, spilaði enn á ný lykilhlutverk í að setja þrýsting á yfirvöld eftir að hafa deilt ljósmyndum af heldur fátæklegum skólamáltíðum yfirvalda. Ákall knattspyrnumannsins varð til þess að máltíðarnar voru til umræðu á breska þinginu í dag.
„Ég held ekki að nokkur á þessu þingi sé ánægður með þessar óforsvaranlegu myndir sem við höfum séð af þeim matarpökkum sem boðið hefur verið upp á,“ sagði Johnson. „Þeir (matarpakkarnir) eru skelfilegir. Þeir eru móðgun við þær fjölskyldur sem hafa fengið þá.“
Skólum á Bretlandi hefur á ný verið lokað eftir að útgöngubann var sett á þar í landi. Fjölskyldum þeirra barna, sem alla jafna er boðið upp á máltíð í skólanum vegna fjárhagsstöðu, hefur verið boðið að þiggja máltíðir áfram heim til sín.
Rashford, sem fékk síðasta vetur MBE-orðu breska ríkisins frá Elísabetu Bretlandsdrottningu fyrir baráttu sína í þágu fátækra barna, vakti fyrst athygli á fátæklegum máltíðum í boði stjórnvalda á Twitter. Hann sagði fyrr í dag að hann hafi átt gott samtal við Johnson um stöðuna.
I totally agree with you @MarcusRashford, these food parcels do not meet the standards we set out and we have made it clear to the company involved that this is disgraceful. The company concerned has rightly apologised and agreed to reimburse those affected. https://t.co/tVCVhUouRa
— Boris Johnson (@BorisJohnson) January 13, 2021
Then imagine we expect the children to engage in learning from home. Not to mention the parents who, at times, have to teach them who probably haven’t eaten at all so their children can...
— Marcus Rashford MBE (@MarcusRashford) January 11, 2021
We MUST do better. This is 2021 https://t.co/mEZ6rCA1LE