Vinsældir Smokkfiskleiksins eða „Squid game“ á Netflix hafa hrundið af stað nýju æði í Suður Kóreu þar sem þættirnir eru framleiddir. Litlar kökur úr bræddum sykri eða svokallaðar dalgona-kökur njóta nú mikilla vinsælda en þær leika stórt hlutverk í þriðja þætti Smokkfiskleiksins.
Í meðfylgjandi myndskeiði AFP fréttaveitunnar er púlsinn tekinn á dalgona-markaðnum í Suður Kóreu.
Jung Jung-soon og maðurinn hennar Lim Chang-joo útbúa rjúkandi heitar dalgona-kökur í Seoul. Hjónin unnu einmitt á settinu við tökur á þáttunum sjálfum.
AFP
Sölustandur í Seoul. Dalgona kökurnar sem hafa gengið í endurnýjun lífdaga eru stökkar, sætar og einfaldar. Þær urðu vinsælar á eftirstríðsárunum þegar hart var í ári.
AFP
Segja má að Lim Chang-joo og Jung Jung-soon hafi dottið í lukkupottinn með vinsældum þáttanna því eftirspurn eftir dalgona-kökum hefur aldrei verið meiri.
AFP
Sykurinn er hitaður og mýktur upp áður en hann er pressaður og skreyttur. Sem betur fer er fólk þó ekki með lífið í lúkunum við átið.
AFP
Regnhlífarformið sem Gi-Hun þurfti að kljást við að kroppa út úr dalgona-kökunni í þáttunum er vinsælt.
AFP
Keppendur í Smokkfiskleiknum fást við dalgona-kökur í þriðja þætti seríunnar.
AFP