Norðmenn aflétta öllum takmörkunum í febrúar

Jonas Gahr Store, forsætisráðherra Noregs.
Jonas Gahr Store, forsætisráðherra Noregs. AFP

Yfirvöld í Noregi tilkynntu í dag að áætlað sé að öllum sóttvarnartakmörkunum þar í landi verði aflétt fyrir 17. febrúar næstkomandi. Norðmenn stigu stórt skref í afléttingum í kvöld er nýjar og vægari sóttvarnarráðstafanir tóku gildi.

„Við erum loksins komin á þann stað að við getum aflétt mörgum af þeim takmörkunum sem við höfum þurft að búa við í vetur,“ sagði Jonas Gahr Store forsætisráðherra Noregs á blaðamannafundi í dag.

Hann bætti við að þjóðin yrði á næstunni að búa sig undir mikla fjölgun smita en undirstrikaði að það yrði gerlegt.

Einangrun stytt í fjóra daga og engin sýni á landamærum

Samkvæmt nýjum sóttvarnaraðgerðum sem tóku gildi nú í kvöld þurfa Norðmenn ekki að fara í sóttkví ef þeir komast í tæri við Covid-smitaðan einstakling.

Einangrun smitaðra styttist og þurfa því þeir sem greinast með veiruna einungis að sæta einangrun í fjóra daga í stað sex.

Fjarvinna verður ekki lengur skylda og ótakmarkaður fjöldi fólks getur heimsótt önnur heimili og sótt íþróttaviðburði.

Ferðamenn sem koma til Noregs þurfa ekki lengur að fara í sýnatöku á landamærunum.

Grímuskylda verður áfram í almenningssamgöngum og verslunum þar sem ekki verður hægt að fylgja eins metra nálægðarreglu.

Önnur nágrannaríki aflétta

Finnar hafa einnig sagst munu aflétta öllum aðgerðum í febrúar.

Færeyingar hyggjast gera það sömuleiðis.

Danir afnámu samkomutakmarkanir innanlands í gær, mánudag.

Þá slökuðu þeir í dag, þriðjudag, á aðgerðum á landamærum.

„Of snemmt“ að fullyrða um tilslakanir hér

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sagst mögulega munu kynna einhverjar tilslakanir á föstudag.

„Ég reikna með að ég muni nýta tím­ann núna, í þessu sam­tali bæði við heil­brigðis­stofn­an­ir um allt land og spít­al­ann, og sam­tal við sótt­varna­lækni, hvort að á föstu­dag­inn ég geti komið með ein­hverj­ar til­slak­an­ir. En það er bara of snemmt að full­yrða um það núna,“ sagði heilbrigðisráðherra í dag.

Tilkynnt var á föstudag að aðgerðum hér innanlands yrði aflétt á sex til átta vikum.

Þann 11. mars verða liðnar sex vikur frá þeirri tilkynningu, og átta vikur þann 25. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert