Málarekstur hafinn gegn ítalska lækninum

Paolo Macchiarini.
Paolo Macchiarini.

Málarekstur gegn Paolo Macchiarini, ítalska lækninum sem græddi plastbarka í sjúklinga á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, hófst í Solna í Svíþjóð í gær. 

Macchiarni er ákærður fyrir gróft ofbeldi gegn þremur sjúklingum sem hann græddi plastbarka í á árunum 2011 og 2012. Létust allir sjúklingarnir en að minnsta kosti einn þeirra var ekki talinn í lífshættu áður en aðgerðin var framkvæmd. Þessi þrjú tilfelli áttu sér stað í Svíþjóð en utan Svíþjóðar framkvæmdi Macchiarini fimm sambærilegar aðgerðir og eru þeir sjúklingar einnig látnir. 

Saksóknarinn í málinu sagði í gær að íhlut­un­in var í trássi við vís­ind­in og sann­reynd­ar aðferðir en Macchiarini hefur hingað til byggt vörn sína á því að hann hafi einungis verið að sinna starfi sínu sem læknir. 

Talið er að málareksturinn muni standa í þrettán daga en mál læknisins var tekið upp að nýju í Svíþjóð árið 2018. 

Árið 2018 úr­sk­urðaði rektor Karólínska há­skóla­sjúkra­húss­ins að sjö lækn­ar hefðu gerst sek­ir um vís­inda­legt mis­ferli. Þar á meðal var Tóm­as Guðbjarts­son, skurðlækn­ir við Land­spít­ala, en sjúk­ling­ur hans, And­emariam Tek­les­en­bet Beyene, var árið 2011 fyrsti til að und­ir­gang­ast aðgerðina. Hann lést árið 2014.

Fram hef­ur komið í rann­sókn sænsku vís­indasiðanefnd­ar­inn­ar, og í skýrslu nefnd­ar á veg­um Land­spít­ala og Há­skóla Íslands vegna máls­ins, að Tóm­as hafi sagt ósatt um ástand sjúk­lings­ins í til­vís­un sinni til Macchi­ar­ini.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert