Vara við frekari árásum

Nítj­án börn og tveir full­orðnir létust eft­ir skotárás á grunn­skóla …
Nítj­án börn og tveir full­orðnir létust eft­ir skotárás á grunn­skóla í Uvalde í suður­hluta Texas í Banda­ríkj­un­um í maí. AFP

Bandarísk yfirvöld hafa varað við mögulegum frekari skotárásunum eftir að 18 ára karlmaður myrti 19 skólabörn og tvo kennara í Texas-ríki fyrir tveimur vikum síðan.

Í uppfærðri ráðgjöf bendir heimavarnarráðuneytið á hættuna á ofbeldi tengdum atburðum sem eru framundan, líkt og niðurstöðu Hæstaréttar varðandi fóstureyðingar og þingkosningar í nóvember.

„Á næstu mánuðum gerum við ráð fyrir mikilli spennu í samfélaginu þar sem mörg stór málefni gætu verið notuð til að réttlæta ofbeldi gegn ýmsum skotmörkum,“ kom meðal annars fram í yfirlýsingu Heimavarnarráðuneytisins.

Hafa hvatt til frekari árása

Nýlegar árásir árásarmanna sem stæðu einir að baki ódæðunum sýndu áskorunina við að vernda viðkvæm skotmörk.

„Einstaklingar á spjallborðum á netinu sem birta efni tengt heimilisofbeldi og samsæriskenningum hafa lofað skotárásina í grunnskólanum í Uvalde í Texas og hvatt til frekari árása,“ sagði í yfirlýsingunni.

Ráðuneytið minntist einnig á árás í Buffalo í New York-ríki þar sem 18 ára hvítur hægri-öfgasinni skaut tíu manns til bana í hverfi þar sem svart­ir íbú­ar eru í meiri­hluta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert