Vara við ofsafengnum fellibyl

Veðurfræðingar í Japan segja bylinn ætla að verað einn sá …
Veðurfræðingar í Japan segja bylinn ætla að verað einn sá versti í áratugi. AFP

Um tveimur milljónum Japana hefur verið ráðlagt að leita skjóls vegna yfirvofandi fellibyljar sem ber nafnið Nanmadol. Veðurstofa Japans gaf út „sérstaka“ rýmingarviðvörun vegna stormsins sem er næst hæsta viðvörunarstigið þar í landi. 

Óveðrið mun ganga yfir Kagoshima-svæðið sem er í suðurhluta Japans. Veðurstofan flokkaði fellibylinn sem „ofsafenginn“. 

Væntanlegur í fyrramálið

Gert er ráð fyrir því að stormurinn gangi yfir Kagoshima að morgni sunnudags og færist svo í norður í átt að meginlandi Japans. 

Forstöðumaður veðurstofu Japans, Ryuta Kurora, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi við fréttamenn:

„Það er hætta á fordæmalausum hviðum, háum öldum og metvatnsfalli. Ýtrustu varúðar skal gætt, þetta er stórhættulegur fellibylur,“ er haft eftir Kurora á AFP-fréttaveitunni. 

Kurora segir líkur á því að hviðurnar geti rifið niður heilu húsin. Vegna þess hefur íbúum á svæðinu verið ráðlagt að yfirgefa svæðið og leita skjóls í sterkbyggðum byggingum. Ráðleggingarnar eru samt sem áður valkvæðar og reynslan sýnir að það sé erfitt fyrir yfirvöld að sannfæra fólk um að yfirgefa heimili sín.

Kurora biðlaði til almennings að virða þessi tilmæli yfirvalda á blaðamannafundi í gær:

„Færið ykkur inn í sterkbyggð húsnæði áður en bylurinn ríður yfir og haldið ykkur fjarri gluggum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert