Eins og nokkur hundruð kíló af sprengiefni

Á myndinni sést gasleki frá Nord Stream 2 leiðslunni.
Á myndinni sést gasleki frá Nord Stream 2 leiðslunni. AFP

Lekarnir fjórir á Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum, sem flytja gas frá Rússlandi til Þýskalands, urðu af völdum neðansjávarsprengingar sem samsvarar sprengingu af völdum hundruð kílóa af sprengiefni.

Þetta segja Danmörk og Svíþjóð í sameiginlegri skýrslu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en halda á neyðarfund vegna lekanna í dag að beiðni Rússa.

„Stærð sprenginganna mældist 2,3 og 2,1 á Richter sem samsvarar líklega því sem nokkur hundruð kíló af sprengiefni myndu valda,“ sagði í skýrslunni.

Stjór­nvöld víða í Evr­ópu gruna Rússa um að hafa framið skemmd­ar­verk á gas­leiðsl­un­um. Rússnesk stjórnvöld segja það aftur á móti af og frá en telja líklegt að erlent ríki beri ábyrgð á lekunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert