Fimbulkuldi í Skandinavíu

Fólk mokar bifreið lausa í Kristiansand í Suður-Noregi en í …
Fólk mokar bifreið lausa í Kristiansand í Suður-Noregi en í þeim landshluta hefur snjónum kyngt niður án afláts síðustu daga. AFP/Erik Schrøder

Helkuldi er um alla Skandinavíu og berst með ísköldu lofti frá Síberíu með margvíslegum afleiðingum. Í Noregi hefur kyngt niður snjó frá því um helgina og akstursskilyrði víða verið þung auk þess sem kennsla mun ekki hefjast í skólum í stærstu bæjarfélögum Suður-Noregs, Kristiansand, Arendal og Grimstad, á fimmtudag svo sem ætlunin var.

Þá hafa íbúar þar á svæðinu setið innilokaðir í húsum sínum vegna fannfergis og sumir mátt notast við gluggana til að komast út og inn. Strætisvagnar í Kristiansand hafa ekki gengið í dag, heldur ekki lestir milli Óslóar og Kristiansand en á fyrrnefnda staðnum spá veðurfræðingar því að nú í vikunni mælist þar mesti kuldi í fjórtán ár – síðan árið 2010.

Í Tønsberg, um 100 kílómetra suður af Ósló, drógu bæjarbúar …
Í Tønsberg, um 100 kílómetra suður af Ósló, drógu bæjarbúar meðal annars fram skíðin til að komast leiðar sinnar eins og þessi vegfarandi sem skíðaði um Øvre Langgate í miðbænum í gærkvöldi. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Neita viðskiptavinum um akstur

Neyðarviðbragðsaðilar hafa þá biðlað til almennings að hringja ekki eftir hjálp nema fólk telji sig í verulegum háska, símalínur þeirra séu rauðglóandi og full þörf á forgangsröðun. Leigubifreiðastöðvar forgangsraða einnig og segja einfaldlega nei við fjölda viðskiptavina til að geta einbeitt sér að verkefnum sem tengjast flutningi sjúklinga og annarra sem þurfa aðstoð heilbrigðiskerfisins.

Miriam Grov býr í Suður-Noregi þar sem snjónum hefur kyngt …
Miriam Grov býr í Suður-Noregi þar sem snjónum hefur kyngt niður og komst hún ekki út úr húsi sínu nema um stofugluggann þar sem útidyr hússins voru algjörlega tepptar en víða höfðu íbúar samband við lögreglu til að fá aðstoð við að komast út úr húsum sínum. Ljósmynd/Úr einkasafni

Að sögn Pernille Borander, veðurfræðings norsku veðurstofunnar, hefur nú dregið úr snjókomu en í Suður-Noregi hefur blásið hressilega og því verið mikið um skafrenning auk þess sem snjór hefur fokið í skafla víða. Reiknar Borander með því að hvasst verði fram á föstudag.

Þá hefur rafmagn víða farið af í kuldanum og voru tæplega 2.000 íbúar í Agder-fylki án rafmagns um klukkan 14 í dag að norskum tíma.

Býsna jólalegt er um að litast í miðbæ Tønsberg þótt …
Býsna jólalegt er um að litast í miðbæ Tønsberg þótt komið sé fram í janúar á nýju ári og þrettándinn, síðasti dagur jóla, nálgist óðfluga. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Látlaus snjókoma á Tirstrup-flugvelli

Nágrannarnir í suðri, Danir, hafa heldur ekki farið varhluta af kuldakastinu en á Austur- og Norður-Jótlandi og Norður-Sjálandi hefur snjóað án afláts í rúmlega hálfan annan sólarhring og snjórinn fokið í háa skafla í vindinum sem næðir um Dani eins og Norðmenn.

Á Tirstrup-flugvellinum í Árósum og þar um kring hefur snjóað látlaust frá því fyrir miðnætti í gærkvöldi og hefur skyggni á vellinum ítrekað farið niður í um 100 metra. Segja danskir veðurfræðingar lægðina þokast í suðurátt og fara inn yfir norðurhluta Þýskalands á fimmtudagsmorgun.

Umferð fór víða úr skorðum í Suður-Noregi, margir komust hvorki …
Umferð fór víða úr skorðum í Suður-Noregi, margir komust hvorki lönd né strönd en annarra beið töluvert verk við að grafa bifreiðar sínar út úr misstórum sköflum svo sem hér má sjá í Tønsberg. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Á Austur- og Norður-Jótlandi hefur heimahjúkrun gengið erfiðlega og sveitarfélagið Hjørring til dæmis brugðið á það ráð að hvetja ættingja og nágranna sjúkra til að koma þeim til aðstoðar sé þess nokkur kostur.

„Við höfum fengið aðstoð hvort tveggja frá fjölskyldum íbúanna og eins frá sjálfboðaliðum sem gjarnan vilja veita aðstoð í sínum hverfum,“ segir Susanne Damgaard, svæðisstjóri heimahjúkrunar í Hjørring, við danska ríkisútvarpið DR.

Þessi strætisvagn rann út af veginum í Viborg á Mið-Jótlandi …
Þessi strætisvagn rann út af veginum í Viborg á Mið-Jótlandi í dag. AFP/Johnny Pedersen

41,6 gráðu frost í Svíþjóð

Í Svíþjóð hefur hitastig farið niður í um 40 stig í mínus en kaldast mældist það -41,6 gráður í Nikkaluokta í Norður-Svíþjóð í gærmorgun. Gul viðvörun er í gildi í höfuðborginni Stokkhólmi vegna fannfergis og hafa samgöngutruflanir komið upp víða.

Í Vittangi í Kiruna í Svíþjóð mældist frost mest 38,9 …
Í Vittangi í Kiruna í Svíþjóð mældist frost mest 38,9 gráður í dag. AFP/Emma-Sofia Olsson

Í morgun féll gámur af flutningabifreið á E18-brautinni við Jakobsberg og lokaði tveimur af þremur akreinum. Tæpa klukkustund tók að færa gáminn og koma umferð í eðlilegt horf á ný. Almenningssamgöngur í Stokkhólmi hafa gengið úr skorðum og víða hafa strætisvagnar þurft að aka fram hjá biðstöðvum vegna hálku þar og hættunnar við að stöðva vagnana. Þetta segir Sophie Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Storstockholms Lokaltrafik, sem rekur almenningssamgöngunet borgarinnar, í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT.

NRK

Nettavisen

DR

SVT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert