Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí

Pólskur karlmaður, sem gaf sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eftir að handtökubeiðni á hendur honum barst frá skrifstofu alþjóðalögreglunnar Interpool í Póllandi, var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí.

Maðurinn er grunaður um aðild að hrottalegu morði í heimalandi sínu og er eftirlýstur þar. Framsalskrafa frá pólskum yfirvöldum barst dómsmálaráðuneytinu í gær.

Maðurinn leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur.
Maðurinn leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur. mbl.is/Brynjar Gauti
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert