Borgarafundur á morgun

 
Bæjarstjórn Árborgar boðar til íbúafundar á morgun vegna jarðskjálftanna síðustu daga.  Á fundinn mæta fulltrúar frá sveitarfélaginu, almannavörnum, lögreglu, björgunarsveitum, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun og Viðlagatryggingu Íslands.

Farið verður yfir stöðu mála og það sem framundan er.  Fundurinn verður haldinn í Sunnulækjarskóla á Selfossi  og hefst hann kl. 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert