Horft á eftir farsælum forystumanni

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir afsögn Guðna koma á óvart. „Við horfum á eftir farsælum forystumanni Framsóknarmanna.“

Birkir segir Guðna hafa tilkynnt um afsögnina á reglubundnum fundi þingflokks Framsóknarflokksins í dag. „Ég virði þessa ákvörðun Guðna og óska honum og fjölskyldu hans góðs gengis í framtíðinni og finn það hér í þinginu að það er mikil eftirsjá eftir honum meðal samstarfsfélaga sem og örugglega hjá Framsóknarfólki öllu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert