Stolið úr bílum í Sandgerði

Sandgerði í forgrunni.
Sandgerði í forgrunni. www.mats.is

Brotist var inn í tvær bifreiðar í Sandgerði um helgina, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Í öðru tilvikinu var farið inn í læstan bíl og stolið úr honum kreditkorti og smáaurum milli sæta. Úr hinni bifreiðinni, sem var ólæst, var stolið leiðsögutæki.

Lögregla brýnir fyrir bifreiðaeigendum að skilja ekki eftir verðmæti á glámbekk í bílum sínum og ganga tryggilega frá þeim að notkun lokinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert