Fimm í gæsluvarðhald

mbl.is/Eggert

Fimm hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um ætlaða sölu og milligöngu vændis af hálfu forsvarsmanns og starfsmanna veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur, en fram hefur komið í fjölmiðlum að umræddur staður sé kampavínsklúbburinn Strawberries.

Fram kemur í tilkynningu, að lögreglan hafi að undanförnu rannsakað grunsemdir sem vaknað hafa um ætlaða sölu og milligöngu vændis af hálfu forsvarsmanns og starfsmanna veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur.

„Í lögregluaðgerð sl. nótt lét lögregla til skara skríða og handtók þá, sem þar voru að störfum á vegum forsvarsmanna staðarins og lokaði jafnframt staðnum og innsiglaði. Í kjölfarið voru framkvæmdar húsleitir á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast eiganda staðarins.

Grunsemdir eru um að milliganga um sölu vændis hafi verið starfrækt á staðnum undanfarna mánuði og jafnvel misseri,“ segir í tilkynningunni.

„Í aðgerðum lögreglu voru fjórir starfsmenn handteknir og jafnframt eigandi staðarins.  Þá voru þrír einstaklingar handteknir grunaðir um kaup á vændi. Ein kona var handtekin vegna grunsemda um sölu fíkniefna. Sjö konur voru á staðnum og hafa þær verið yfirheyrðar sem vitni. Í kjölfar aðgerða voru starfsmenn og eigandi leiddir fyrir dómara með kröfu um gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins. Þeir hafa verið úrskurðaðir til að sæta gæsluvarðhaldi til 8. nóvember í þágu rannsóknar málsins.

Staðnum verður lokað um óákveðinn tíma í þágu rannsóknar málsins, en jafnframt mun leyfi staðarins verða skoðað í ljósi þessa máls.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu,“ segir ennfremur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert