Hellisheiðin ófær vanbúnum bílum

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Selfossi beinir því til fólks að leggja ekki á Hellisheiðina á bifreiðum sem ekki eru búnar til vetraraksturs.

Lögreglumenn eru þessa stundina að aðstoða fólk sem situr fast í Kömbunum fyrir ofan Hveragerði á vanbúnum bifreiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert