Tré rifnaði upp á Skeggjagötu

Ljósmynd/Jónas Guðmundsson

Lögreglan og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út í gærkvöldi á Skeggjagötu en þar hafði mjög stórt tré rifnað upp í óveðrinu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu þurfti að saga tréð niður svo það myndi ekki valda skemmdum en fjölmörg útköll bárust til björgunarsveita í gær vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert