Kosningabarátta Höllu Tómasdóttur, forsetaframbjóðanda, er komin á fulla ferð. Hluti af baráttunni er samtal Höllu við kjósendur, en hún verður í beinni útsendingu á Facebook-síðu framboðsins hvern þriðjudag kl. 13 fram að kosningum.
Útsendingin ber yfirskriftina „Samtal – Halla í beinni“. „Þar mun Halla ræða stefnumál sín, eiga samtal við áhorfendur og svara spurningum jafnóðum og þær berast,“ segir í tilkynningu frá Höllu.
Fyrsta útsendingin er í dag klukkan 13 og hér má fylgjast með umræðunni.
Samtal: Halla í beinni 29.mars
Posted by Halla Tomasdottir on Tuesday, March 29, 2016
Frétt mbl.is: Sárið í samfélaginu enn til staðar
Frétt mbl.is: Halla Tómasdóttir býður sig fram