RSÍ krefst róttækra breytinga á kjararáði

Trúnaðarmannaráðstefna Rafiðnaðarsambands Íslands krefst þess að kjararáð dragi úrskurði sína …
Trúnaðarmannaráðstefna Rafiðnaðarsambands Íslands krefst þess að kjararáð dragi úrskurði sína til baka. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Trúnaðarmannaráðstefna Rafiðnaðarsambands Íslands krefst þess að kjararáð dragi úrskurði sína til baka um hækkun launa alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands sem og þá úrskurði sem hækkuðu laun afmarkaðra hópa umfram það sem almennt gerist á íslenskum vinnumarkaði. 

Trúnaðarmannaráðstefnan fór fram á Selfossi dagana 3. og 4. nóvember 2016, en greint er frá þessu í frétt á vef Rafiðnaðarsambandsins. Þá er þess jafnframt krafist að róttækar breytingar verði gerðar á kjararáði með það að markmiði að „tengja ákvarðanir þess við raunveruleikann“. Að öðrum kosti hljóti kjarasamningum að vera sagt upp í upphafi næsta árs „með tilheyrandi óróleika og átökum,“ að mati ráðstefnunnar.

„Úrskurðir kjararáðs eru til þess fallnir að gjöreyða þeirri sátt í samfélaginu sem reynt hefur verið að móta á undanförnum árum með miklum átökum. Nauðsynlegt er að árétta að öll ábyrgð á úrskurðum kjararáðs hvílir á Alþingi og alþingismönnum sjálfum,“ segir meðal annars í fréttinni.

Hækkunin nemi allt að tvöföldum lágmarkslaunum

Telur sambandið að ekki geti skapast sátt í samfélaginu um laun þeirra hópa sem fá umrædda launahækkun sem nemi allt að 75% frá árinu 2013. Á sama tíma sé almenningi gert að sætta sig við talsvert lægri hækkanir, eða um 32% launahækkun. Þá segir í fréttinni að hækkunin í tilfelli alþingismanna geti numið allt að ríflega tvöföldum lágmarkslaunum rafiðnaðarmanna.

„Öllum umræðum um innleiðingu nýs samningalíkans er með þessari ákvörðun sturtað niður í einu vetfangi og verður þeirri vinnu ekki haldið áfram á komandi árum að öðru óbreyttu,“ segir loks í frétt Rafiðnaðarsambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert