SPRON-málið á dagskrá Hæstaréttar

Frá aðalmeðferð í SPRON-málinu í héraði á síðasta ári.
Frá aðalmeðferð í SPRON-málinu í héraði á síðasta ári. mbl.is/Styrmir Kári

SPRON-málið svokallaða er komið á dagskrá Hæstaréttar þann 11. janúar á næsta ári. Í málinu voru stjórn og sparisjóðsstjóri SPRON ákærð fyrir umboðssvik vegna tveggja milljarða lánveitingu til félagsins Exista þann 30. september 2008.

Allir ákærðu voru aftur á móti sýknaðir í héraðsdómi í júní á síðasta ári og sagði í dómnum að ekkert benti til þess að stjórnarmennirnir hefðu látið hjá líðast að afla upplýsinga um greiðslugetu eða eignastöðu félagsins við lánveitinguna eins og saksóknari hélt fram.

Þau sem voru ákærð í málinu voru fyrr­ver­andi stjórn­ar­mennirnir, þau Ari Berg­mann Ein­ars­son, Jó­hann Ásgeir Bald­urs, Mar­grét Guðmunds­dótt­ir og Rann­veig Rist, sem og fyrr­ver­andi spar­is­sjóðstjóri SPRON, Guðmund­ur Örn Hauks­son.

Sér­stak­ur sak­sókn­ari taldi að þau hefðu mis­notað aðstöðu sína og stefnt fé spari­sjóðsins í veru­lega hættu þegar þau samþykktu á stjórn­ar­fundi þann 30. sept­em­ber 2008 að veita Ex­ista tveggja millj­arða króna pen­inga­markaðslán án trygg­inga og án þess að leggja mat á greiðslu­getu og eigna­stöðu Ex­ista í sam­ræmi við út­lána­regl­ur.

„Fyr­ir ligg­ur að Ex­ista hf. var fyr­ir­tæki sem skráð var á markað og bar upp­lýs­inga­skyldu sem slíkt. Þá ligg­ur einnig fyr­ir að Ex­ista hf. hafði fyrr á sama ári fengið pen­inga­markaðslán hjá SPRON og þannig verið metið hæft til að eiga í slík­um viðskipt­um við spari­sjóðinn. Að síðustu lá fyr­ir að inn­an spari­sjóðsins var fyr­ir hendi veru­leg þekk­ing á mál­efn­um fyr­ir­tæk­is­ins og þróun þess.

Höfðu hinir ákærðu stjórn­ar­menn því rétt­mæta ástæðu til að ætla að þær upp­lýs­ing­ar sem starfs­menn spari­sjóðsins veittu þeim væru full­nægj­andi og traust­ar,“ seg­ir í dómn­um.

Þá bend­ir dóm­ur­inn einnig á að þótt fyr­ir hafi legið að markaðsvirði Ex­ista hefði lækkað um­tals­vert mánuðina á und­an hafi stjórn­in engu að síður mátt ætla að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ing­ar væru í meg­in­at­riðum áreiðan­leg­ar.

Voru því sem fyrr segir allir ákærðu í málinu sýknaðir í héraðsdómi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert