Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair hófst klukkan eitt hjá ríkissáttasemjara.
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa boðað til verkfalls ótímabundið frá klukkan 6 að morgni þann 17. desember.
Samningar þeirra við Icelandair losnuðu 31. ágúst og var kjaraviðræðunum vísað til ríkissáttasemjara 8. september. Síðan þá hefur verið fundað margsinnis, án árangurs.