Rannsaka minnisbók Roberts

Hulda Elsa segir lögregluna nú rannsaka minnisbók Roberts.
Hulda Elsa segir lögregluna nú rannsaka minnisbók Roberts. mbl.is/Golli

Minnisbók Roberts Downeys, sem inniheldur nöfn, símanúmer og netföng 335 kvenna, er nú til skoðunar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, staðgengill lögreglustjóra, við Rúv í dag. Bergur Þór Ingólfsson og Eva Vala Guðjónsdóttir, foreldrar stúlku sem Robert braut á, skrifuðu í morgun grein í Fréttablaðið, þar sem þau töluðu um mikilvægi þess að rannasaka minnisbókina í þaula.

Bentu þau á að komið hefði fram í fjölmiðlum að yfirvöld hafi ekki athugað hvaða konur væru á bak við nöfnin í bókinni, utan þeirra fimm sem sannað var að Robert hefði brotið gegn. „Ef þetta er staðreynd­in hafa brot átt sér stað í 100% rann­sakaðra til­fella í sönn­un­ar­gagni G-06 og eft­ir standa 330 nöfn órann­sökuð,“ segir í grein þeirra.

Bókin var talin týnd, en Anna Katrín Snorradóttir hefur höfðað mál gegn Robert og var henni tjáð af yfirvöldum að hún væri týnd eða ónýt. Síðar kom bókin í ljós í vörslum lögreglunnar.

Hulda Elsa sagði á opnum fundi í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fyrr í mánuðinum að „ef svona bók kæmi til okk­ar í dag mynd­um við rann­saka þetta í þaula. Að sjálf­sögðu. Við mynd­um fara mjög vel yfir þetta í dag. Ég get full­yrt það.“

Segja Bergur og Eva að þar sem kynferðisbrot gegn börnum fyrnist ekki hljóti það að vera skylda yfirvalda að rannsaka bókina í þaula.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert