Rafmagnslaust í Þorlákshöfn

Þorlákshöfn.
Þorlákshöfn. mbl.is/Árni Sæberg

Rafmagnslaust er í Þorlákshöfn. Fram kemur á vef Landsnets að spenni hafi leyst út og að menn séu á leið í bæinn frá Selfossi til að kanna aðstæður.

Rafmagnið fór af klukkan 21.42, samkvæmt vef Landsnets, og er alvarleikinn metinn rauður, sem skilgreinist sem umfangsmikill atburður.

Í skilaboðum til íbúa á svæðinu kemur fram að rafmagnsbilun sé í Þorlákshöfn og nágrenni og verið sé að leita að bilun.

Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúa Landsnets, varð bilun í spenni frá Rarik og er hópur frá þeim á leiðinni í bæinn.

Hún staðfestir að allur bærinn sé rafmagnslaus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert