VR hættir viðskiptum við Hörpu

VR ætlar að hætta viðskiptum við Hörpu.
VR ætlar að hætta viðskiptum við Hörpu. Ljósmynd/Aðsend

VR hefur ákveðið að hætta að nota Hörpu tónlistarhús undir viðburði félagsins í ljósi yfirlýsingar frá Hörpu í morgun.

„Sóma síns vegna getur VR ekki átt í viðskiptatengslum við fyrirtæki sem hagar sér með svo lítilmannlegum hætti gagnvart launafólki,“ segir í tilkynningu frá VR.

Þar segir að lægst launuðu starfsmenn Hörpu hafi sýnt einstakt þor og áræði með því að segja nær allir upp störfum.

Beðið hafi verið með eftirvæntingu eftir niðurstöðu fundar forstjóra og yfirstjórnar í morgun í von um „hið augljósa óréttlæti“ yrði leiðrétt með einhverjum hætti.

„Yfirlýsing Svanhildar Konráðsdóttur, forstjóra Hörpu tónlistarhúss, í dag þriðjudaginn 8. maí 2018 kemur sem blaut tuska í andlit félagsmanna VR. Einu viðbrögðin eru þau að kveðja þessa dugmiklu starfsmenn og óska þeim velfarnaðar!“ segir í yfirlýsingunni.

 „VR sem stéttarfélag getur ekki annað en tekið sér stöðu með starfsmönnum sem  hafa verið smánaðir með þessum ótrúlega hætti og hætt öllum viðskiptum við Hörpu tónlistarhús þar til þetta mál fær eðlilega afgreiðslu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert