Tveir prestar tekjuhærri en biskup

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er í þriðja sæti á …
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er í þriðja sæti á lista Frjálsrar verslunar yfir tekjur fólks í prestastétt. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tveir prestar voru með hærri laun en Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, á síðasta ári, samkvæmt lista Frjálsrar verslunar yfir tekjur í prestastéttinni.  Það voru þeir Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur á Landspítala, og Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur hjá Fríkirkjunni í Reykjavík.

Bragi var launahæsti prestur landsins með 1.491.000 kr. á mánuði í fyrra, en Hjörtur þénaði þrjú þúsund krónum minna í mánuði hverjum. Agnes biskup er svo í þriðja sæti listans, með 1.293.000 kr. á mánuði.

Í fjórða sæti listans yfir tekjuhæstu prestana er Sigurður Rúnar Ragnarsson, sóknarprestur á Norðfirði, sem var með tæpar 1,2 milljónir króna á mánuði. Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup Íslands, er svo í fimmta sæti listans, en hann var sömuleiðis með tæpar 1,2 milljónir á mánuði að meðaltali.

Alls voru nítján prestar með yfir milljón í mánaðarlaun að meðaltali, samkvæmt lista Frjálsrar verslunar.

Sá fyr­ir­vari er á þess­um töl­um að tekju­könn­un Frjálsr­ar versl­un­ar bygg­ist á álögðu út­svari eins og það birt­ist í álagn­ing­ar­skrám rík­is­skatt­stjóra. Í ein­hverj­um til­vik­um kann að vera að skatt­stjóri hafi áætlað tekj­ur eða þá að út­svars­skyld­ar tekj­ur ein­stak­linga end­ur­spegli ekki föst laun viðkom­andi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert