Fyrirtaka í máli hjóna í nóvember

Maðurinn á leið í dómsalinn í dag.
Maðurinn á leið í dómsalinn í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrirtaka í máli hjóna sem eru grunuð um gróf kyn­ferðis­brot gegn dótt­ur sinni og stjúp­dótt­ur fer fram 5. nóvember. Þetta kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykja­ness í dag. Þing­hald var lokað eins og van­inn er í kyn­ferðis­brota­mál­um.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sagði að hjónin hefðu játað brot sín að hluta en gat ekkert tjáð sig frekar um málið þegar blaðamaður mbl.is ræddi við hana fyrir utan dómsalinn.

For­saga máls­ins er sú að stjúp­dótt­ir­in kom á lög­reglu­stöðina á Suður­nesj­um og lagði fram kæru á hend­ur mann­in­um og móður sinni. Við yf­ir­heyrslu í júlí játaði fólkið að hafa framið brot­in. Kon­an sætti gæslu­v­arðhaldi en var síðan sleppt þar sem hlut­ur manns­ins í brot­inu var tal­inn meiri.

Konan á leið í dómsalinn.
Konan á leið í dómsalinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eft­ir að ákæra var gef­in út í mál­inu 1. októ­ber var kon­an aft­ur úr­sk­urðuð í gæslu­v­arðhald. Kom þá fram að héraðssak­sókn­ari teldi að ef kon­an hefði gerst sek um jafnal­var­leg brot og henni væru gef­in að sök myndi það valda hneyksl­un og særa rétt­ar­vit­und al­menn­ings gengi hún laus.

Fólkið hef­ur viður­kennt að hafa beitt dótt­ur kon­unn­ar grófu of­beldi og enn frem­ur að hafa gert það á meðan önn­ur dótt­ir þeirra horfði á. 

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Ófeigur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert