„Miður mín yfir mörgu sem ég sagði“

Bergþór Ólason.
Bergþór Ólason. Ljósmynd/Aðsend

„Ég hef talað við áfengisráðgjafa og leitað aðstoðar sálfræðings og ég hef átt löng og hispurslaus samtöl við þá sem lengi hafa þekkt mig.

Ég er miður mín yfir mörgu sem ég sagði þetta kvöld og sérstaklega yfir því að orð mín hafi orðið til þess að særa fólk sem ég hef aldrei viljað særa en varð skiljanlega sárt þegar upptaka af samtalinu var spiluð fyrir alþjóð. Ég ber ábyrgð á eigin orðum.“

Þetta segir Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, m.a. í aðsendri grein í Morgunblaðinu í  dag,  en hann hefur verið í launalausu leyfi á Alþingi eftir Klausturmálið.

Grein Berþórs í heild sinni má lesa hér:

„Það er óskemmtileg reynsla að hafa komið sjálfum sér illilega á óvart. Það vita margir af eigin reynslu og aðrir mega trúa mér. Eitt kvöldið í nóvember á síðasta ári fórum við nokkur og settumst saman inn á veitingahús. Öll eigum við sæti á Alþingi og þetta kvöld stóð svo á að umræðu um fjárlög var að ljúka og öll höfðum við þá lokið ræðum okkar um þau. Við sátum sum lengi og höfðum áfengi um hönd. Við göspruðum út og suður, þar á meðal um stjórnmálin, stjórnmálaflokkana og ýmsa stjórnmálamenn. Ekki hvarflaði að neinu okkar að við værum að tala við fleiri en okkar litla hóp. Engu okkar datt í hug að nokkur yrði móðgaður eða sár af tali okkar.

Viku síðar var sagt frá því opinberlega að samtal okkar hefði verið hlerað og hljóðritað. Annar gestur á veitingahúsinu hefði setið tímunum saman með upptökutæki og komið upptökunni á valda fjölmiðla. Þeir fóru síðan að birta úr henni brot og brot og svo lengri og lengri kafla, allt auðvitað í nafni réttar almennings til að vita hvernig þingmenn gætu talað þegar þeir væru ölvaðir. Atvinnuleikhús efndi strax til sýningar þar sem allt mun hafa verið lesið upp.

Margt kom illilega við mig í þessu. Mér fannst vond þróun að legið væri á hleri þegar annað fólk talar saman á veitingahúsum. Mér fannst vont að fjölmiðlar teldu sjálfsagt að birta slíkt drykkjuraus opinberlega og eiginlega enn verra hversu margir voru ánægðir með hvorttveggja. En verst af öllu fannst mér að heyra í sjálfum mér.

Ég hef vissulega margt við upptökuna og við ýmis viðbrögð við henni að athuga. Mér finnst líka mjög athyglisvert hversu hart hefur verið barist gegn því að við, sem vorum hleruð, fáum aðgang að gögnum sem eru til og geta líklega sýnt hvernig var í raun staðið að því að hlera samtal okkar. En ekkert af þessu finnst mér þó eins slæmt og sumt af því sem ég sjálfur hef sagt þetta kvöld. Upptakan var að vísu ólögmæt, hún virðist klippt saman og margt í fréttaflutningi af tali okkar og talsmáta hefur verið tekið úr samhengi, en í mínum huga er aðalatriðið að margt af því sem ég hef greinilega sagt þetta kvöld er að mínu mati til skammar, ekki aðeins sleggjudómar og fáránlegar hugleiðingar heldur einnig stundum með orðbragði sem kemur mér mjög illilega á óvart að ég hafi notað.

Þegar mér varð ljóst hvernig ég hafði í raun talað við félaga mína þetta kvöld ákvað ég að taka mér launalaust leyfi frá þingmennsku minni. Ég vildi ná áttum og horfa í spegilinn á þennan mann sem þarna hafði talað með orðbragði sem ég hefði ekki getað ímyndað mér að hann ætti til. Um þetta hef ég síðan átt í samtali við bæði sjálfan mig og marga sem meira vita. Ég hef talað við áfengisráðgjafa og leitað aðstoðar sálfræðings og ég hef átt löng og hispurslaus samtöl við þá sem lengi hafa þekkt mig. Ég er miður mín yfir mörgu sem ég sagði þetta kvöld og sérstaklega yfir því að orð mín hafi orðið til þess að særa fólk, sem ég hef aldrei viljað særa, en varð skiljanlega sárt þegar upptaka af samtalinu var spiluð fyrir alþjóð. Ég ber ábyrgð á eigin orðum og finnst virkilega leiðinlegt að hafa látið þau verstu þeirra falla. Í okkar fámenna hópi á veitingahúsinu voru þessi orð ósmekklegt en meiningarlaust raus yfir glasi, sem engan særði. Það var ekki okkar ákvörðun að þau skyldu borin á borð fyrir alla þjóðina.

Í kosningunum haustið 2017 var ég kjörinn á þing og í þingstörfum mínum hef ég reynt að berjast fyrir hagsmunum fólksins í því kjördæmi sem ég tilheyri og fyrir þeirri stefnu sem flokkur minn byggist á. Ég hyggst gera þetta áfram eftir bestu getu. Ég fagna hverjum þeim sem vill eiga við mig samstarf um raunveruleg brýn málefni en mun ekki erfa það við neinn sem fer aðrar leiðir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert