Áfram í haldi vegna gruns um íkveikju

Húsið gjöreyðilagðist í brunanum og tveir létust. Karlmaður á sextugsaldri …
Húsið gjöreyðilagðist í brunanum og tveir létust. Karlmaður á sextugsaldri er ákærður fyrir brennu og manndráp. mbl.is/Eggert

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem ákærður er fyrir brennu og manndráp á Selfossi 31. október sl. í tengslum við mikinn eldsvoða í íbúðarhúsi.

Maðurinn er til vara ákærður fyrir brennu og manndráp af gáleysi, en hann er grunaður um að hafa lagt eld að pappakassa og gardínum í stofu á neðri hæð íbúðarhússins og valdið eldsvoðanum sem hafði í för með sér almannahættu, vitandi af tveimur gestum í svefnherbergi á efri hæð hússins. Létust þeir í brunanum og húsið gjöreyðilagðist.

Vísað til dóms Mannréttindadómstólsins

Landsréttur staðfesti úrskurðinn með vísan til forsendna úrskurðar Héraðsdóms Suðurlands, en meðal raka ákærða var að fyrri úrskurðir Landsréttar um gæsluvarðhald væru ekki gildir í ljósi niðurstöðu dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 12. mars sl. (í Landsréttarmálinu), þar sem sömu sjónarmið og þar hafi komið fram ættu við um skipun Ásmundar Helgasonar sem dómara í Landsrétt. Hann væri einn þeirra dómara sem kveðið hefðu upp fyrri gæsluvarðhaldsúrskurði yfir ákærða. Því bæri að láta hann lausan. Þessu hafnaði Landsréttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert