Rannsókn brunans á Selfossi að ljúka

Rannsókn brunans er á lokastigi og er farið fram á …
Rannsókn brunans er á lokastigi og er farið fram á að gæsluvarðhald yfir hinum grunaða verði framlengt um fjórar vikur. mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurlandi fer fram á að Héraðsdómur Suðurlands framlengi gæsluvarðhald yfir karlmanni, sem er grunaður um að hafa valdið eldsvoða að Kirkjuvegi 18 á Selfossi 31. október, um fjórar vikur. Tveir einstaklingar létu lífið í brunanum. Krafan verður tekin fyrir í héraðsdómi í dag.

Rannsókn málsins er á lokastigi og verður málið sent héraðssaksóknara til meðferðar fyrir áramót, að sögn Gríms Hergeirssonar, saksóknara hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Gildandi gæsluvarðhald yfir manninum rennur út í dag klukkan fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert