Teknir í tollinum á Seyðisfirði

Mennirnir voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands …
Mennirnir voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands fyrir hádegi í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Tollverðir á Seyðisfirði stöðvuðu tvo erlenda karlmenn er ferjan Norræna lagðist þar að á fimmtudag. Í ljós kom að þeir voru með mikið magn fíkniefna í fórum sínum.

Mennirnir voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands fyrir hádegi í dag.

Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, en lögregla segir rannsóknina vera á viðkvæmu stigi og hyggst ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert