Smyglararnir komu á sama bíl til landsins í fyrra

Smygl­ar­arn­ir sem hand­tekn­ir voru við kom­una til Seyðis­fjarðar með Nor­rænu …
Smygl­ar­arn­ir sem hand­tekn­ir voru við kom­una til Seyðis­fjarðar með Nor­rænu í byrjun ágúst komu einnig til landsins með Norrænu í fyrrasumar, á sama bíl og fíkniefnin fundust í ferjunni nú. Mbl.is/Snorri

Menn­irn­ir tveir sem hand­tekn­ir voru við komu Nor­rænu til Seyðis­fjarðar 1. ág­úst, grunaðir um að hafa flutt veru­legt magn af fíkni­efn­um til lands­ins, komu einnig til landsins með Norrænu í fyrrasumar. RÚV greinir frá. 

45 kíló fundust af sterkum fíkniefnum, kókaíni og amfetamíni, við leit í bifreið mannanna við komu þeirra með Norrænu í byrjun ágúst. 

Fram kemur í frétt RÚV að tvímenningarnir, sem eru með rúmenskt og þýskt ríkisfang, hafi komið til Íslands með Norrænu í fyrrasumar á sömu skilríkjum og nú og á sama bílnum og fíkniefnin voru falin í nú.

Lögregla verst allra frétta vegna málsins en segir að rannsóknin sé viðamikil og unnin í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld. Fréttastofa RÚV hefur heimildir fyrir því að grunur sé um að mennirnir hafi einnig haft fíkniefni meðferðis við komuna til landsins í fyrra. Þá hafi annar maðurinn komið flugleiðis til Íslands, að minnsta kosti einu sinni, á síðustu misserum. 

Mennirnir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald 16. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert