Óvissustigið á við um örfá hús

Súðarvíkurhlíð suður.
Súðarvíkurhlíð suður. Ljósmynd/Vegagerðin.

Óvissustigið gagnvart snjóflóðahættu í byggð á norðanverðum Vestfjörðum á einungis við um örfá hús, aðallega fyrirtæki og einstaka íbúðahús sem standa stök og eru á þekktum svæðum.

„Það eru ekki nema örfá hús sem er verið að fylgjast sérstaklega með núna á þessu óvissustigi,“ segir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, spurður út í stöðu mála.

Þar að auki er fylgst með vegum sem eru undir hættulegum hlíðum, með tilliti til snjóflóðahættu, og eru lokanir á þeim stöðum.

Hlynur Hafberg segir fólk halda sig til hlés þegar mikið er um lokanir og bendir hann á að veðurspáin geri ráð fyrir hvössu veðri og úrkomu en spáð er skafrenningi seinna í dag og á morgun. Ekkert flugveður er fyrir vestan.

Spá Veðurstofu Íslands um snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum

Opið er á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar og í þéttbýlinu á Vestfjörðum. Einnig eru vegir opnir á sunnanverðum Vestfjörðum.

Hlynur hvetur fólk til að fylgjast vel með veðurspám, vef Vegagerðarinnar og öðrum tilkynningum.

Veðurvefur mbl.is 

Frá Vestfjörðum. Neðst á þessari mynd, þar sem horft er …
Frá Vestfjörðum. Neðst á þessari mynd, þar sem horft er til vesturs, er Skálmarfjörður og Vattarnes til hægri. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert