Áframhaldandi skjálftavirkni og landris

Fjallið Þorbjörn.
Fjallið Þorbjörn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áframhaldandi jarðskjálftavirkni mælist í grennd við Grindavík, en dagurinn hefur verið nokkuð tíðindalítill. Frá miðnætti hafa mælst um 60 skjálftar á svæðinu, flestir undir 2 að stærð.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar en klukkan 19:04 í gærkvöldi mældist skjálfti af stærð 3,3 um 2 km norðaustur af Grindavík.

Frá 21. janúar hafa yfir 1.100 skjálftar verið staðsettir á svæðinu, þar af um 700 yfir helgina, flestir í SV/NA-stefnu um 2 km NA af Grindavík.

Nýjasta gps-úrvinnslan sýnir áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um 5 cm frá 20. janúar. Gervitunglamyndir sýna sömu þróun. Með landrisi má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni.

Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-9 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virkninni ljúki án eldsumbrota.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert