Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á leið í verkfall

Félagsmenn í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa samþykkt verkfallsboðun í …
Félagsmenn í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa samþykkt verkfallsboðun í atkvæðagreiðslu, eins og fram kemur í meðfylgjandi tilkynningu. Verkföllin munu hefjast eftir tvær vikur, mánudaginn 9. mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tæplega 80% félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) samþykktu boðun verkfallsaðgerða í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 18. til 21. febrúar.

Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var afar góð, en um 68,4 prósent þeirra sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði. Aðgerðir LSS beinast bæði að ríkinu og sveitarfélögum í landinu og hefjast þriðjudaginn 10. mars.

Aðgerðirnar verða tímasettar samhliða aðgerðum annarra aðildarfélaga BSRB sem boðað hafa til verkfallsaðgerða frá 9. mars næstkomandi. Alls hafa nú sextán aðildarfélög bandalagsins tilkynnt viðsemjendum um umfangsmiklar verkfallsaðgerðir sem ná munu hámarki með ótímabundnu allsherjarverkfalli 15. apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma.

Boðuðum aðgerðum má skipta í tvo flokka. Í fyrsta lagi mun þorri félagsmanna hjá ríkinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg leggja niður störf á ákveðnum dögum. Þessi hópur mun leggja niður störf dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl. Félagar í LSS munu leggja niður störf dagana 10. mars, 18. mars, 26. mars og 1. apríl.

Í öðru lagi munu smærri hópar félagsmanna ákveðinna aðildarfélaga verða í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Í þeim hópi eru meðal annars starfsmenn í grunnskólum og leiðbeinendur á frístundaheimilum á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness auk starfsmanna hjá Skattinum og sýslumannsembættum um allt land.

Þessar aðgerðir munu halda áfram fram í dymbilviku, en hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu félagsmenn sextán aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert