65 starfsmenn SÁÁ lýsa yfir vantrausti

65 manns undirrita yfirlýsinguna.
65 manns undirrita yfirlýsinguna. mbl.is/Eggert

Starfsfólk meðferðarsviðs SÁÁ lýsir yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna, í yfirlýsingu sem mbl.is hefur undir höndum. Framkoma þeirra gagnvart fagfólki sviðsins er sögð hafa valdið því að algjört vantraust ríki þeirra á milli. Ákvörðun þeirra um fyrirvaralausar uppsagnir er sögð óafsakanleg.

Í yfirlýsingunni segir að formaður SÁÁ og framkvæmdastjórn hafi tilkynnt fyrirvaralaust um uppsögn lykilstarfsmanna á meðferðarsviðinu, þar á meðal yfirsálfræðings og allra annarra starfandi sálfræðinga, utan eins, án samráðs við stjórnendur og fagfólk sviðsins.

Lýsa yfir stuðningi við Valgerði

„Við lýsum yfir fullum stuðningi við Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni og forstjóra sjúkrahússins Vogs sem nú hefur séð sig tilneydda til að segja upp störfum sínum vegna þessara gerræðislegu aðgerða stjórnar sem ekki er hægt að túlka á annan hátt en vantraustsyfirlýsingu á hennar hendur,“ segir í yfirlýsingunni.

Valgerður hafi í starfi sínu sýnt að hún sé rétta manneskjan til að leiða faglega þjónustu og þróun meðferðarstarfs inn í nýja tíma.

„Framlag Ingunnar Hansdóttur yfirsálfræðings hefur verið ómetanlegt við þróun meðferðar, fræðslu og þjálfun starfsfólks og við mótun framtíðarsýnar meðferðarsviðs. Uppsögn hennar og annarra sálfræðinga er mikið reiðarslag fyrir meðferðarsvið.“

Meðferð SÁÁ byggist á faglegum grunni þar sem stuðst sé við vísindalega gagnreyndar aðferðir. Meðferðin sé veitt af þverfaglegu teymi fagfólks, læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sálfræðingum og áfengis- og vímefnaráðgjöfum.

Óafsakanleg ákvörðun

„Ákvörðun framkvæmdastjórnar og formanns er óafsakanleg og vinnur gegn markmiðum SÁÁ um faglega meðferð við fíknisjúkdómi.

Við lýsum yfir miklum áhyggjum okkar yfir að ófagleg stjórn félagasamtaka geti haft óskorað vald yfir rekstri meðferðarsviðs og ógnað faglegri starfsemi þess með afdrifaríkum sjálfstæðum ákvörðunum án samráðs við ábyrga yfirmenn og fagfólk.

Við förum fram á það að framkvæmdastjórn dragi til baka uppsagnir sálfræðinga og lykilstarfsfólks meðferðarsviðs og að framkvæmdastjórn og formaður stígi umsvifalaust til hliðar og stofnuð verði starfsstjórn þar sem fulltrúar allra meðferðarstétta eigi sæti.

Við förum þess á leit að heilbrigðisráðherra grípi inn í stöðu mála hjá meðferðarsviði SÁÁ með hverjum þeim hætti sem hann telur sér heimilt. Við teljum þetta vera nauðsynlegt svo ekki hljótist varanlegur skaði af núverandi ástandi fyrir starfsemi SÁÁ og þjónustu stofnunarinnar í þágu sjúklinga.“

Eftirtalin undirrita yfirlýsinguna:

  • Víðir Sigrúnarson, yfirlæknir, sjúkrahúsinu Vogi
  • Guðbjörn Björnsson. yfirlæknir, sjúkrahúsinu Vogi
  • Gísli Stefánsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Ásgrímur Jörundsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Guðmann Magnússon, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Jón Börkur Ákason, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Karl Gunnarsson, dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ
  • Aðalbjörg Ósk Angantýsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Torfi Hjaltason, dagskrárstjóri meðferðarstöðvarinnar Vík
  • Hörður J. Oddfríðarson, dagskrárstjóri, meðferðarsvið SÁÁ
  • Sigurður Gunnsteinsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Berglind Heimisdóttir, hjúkrunarfræðingur sjúkrahúsinu Vogi
  • Tinna Dögg Jóhannsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Rodrigo Vito Cruz Corcuera, hjúkrfr. sjúkrahúsinu Vogi
  • Lea Floresca Esteban, hjúkrunarfræðingur sjúkrahúsinu Vogi
  • Arndís Ásgeirsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur, meðferðarsviði SÁÁ
  • Guðrún Sigurðardóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Auður Teitsdóttir, móttökuritari, sjúkrahúsinu Vogi     
  • Ásdís Finnbogadóttir, hjúkrfr., aðstoðardeildarstjóri sjúkrahúsinu Vogi
  • Helga Þormóðsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Bryndís Ólafsdóttir, hjúkrfr., deildarstjóri sjúkrahúsinu Vogi
  • Sandra Björnsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Baldvin Þorsteinsson, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Silja Jónsdóttir, sálfræðingur, meðferðarsvið SÁÁ
  • Elín Þórdís Meldal, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Jakob Smári Magnússon, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Júlía Guðrún Aspelund, lýðheilsufræðingur, meðferðarsviði SÁÁ
  • Sólborg Indiana Guðjónsdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ  
  • Katrín Jónsdóttir, sálfræðingur, ungmennadeild SÁÁ
  • Birkir Björnsson, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Þóra Björk Ingólfsdóttir, sálfræðingur, meðferðarsviði SÁÁ
  • Emilija Aleksandraviciene, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Vignir Fannar Valgeirsson, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Tita Valle, hjúkrunarfræðingur, sjúkrahúsinu Vogi
  • Ingibjörg Jónsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Helga Agnes Björnsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Oddur Sigurjónsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Halla Magnúsdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Sigurbjörg Anna Björnsdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Jóna Eydís Sigurjónsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Einar Þór Karlsson, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Ingunn Hekla Jónsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Kristín Lovísa Jóhannsdóttir, hjúkrfr., sjúkrahúsinu Vogi
  • Sunneva Ýr Sævarsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Þorgeir Steingrímsson, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Hrefna Mjöll Þórisdóttir, móttökuritari, sjúkrahúsinu Vogi
  • Sara Karlsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ                                     
  • Rakel Birgisdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi SÁÁ
  • Dagrún Þórný Marínardóttir, læknaritari, sjúkrahúsinu Vogi
  • Vigdís Margrétardóttir Jónsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Natasa Stankovics, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Guðrún Ósk Njálsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Arnór Björnsson, ráðgjafanemi SÁÁ                    
  • Hólmfríður Víkingsdóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Bryndís Árný Kristínardóttir, sjúkraliðanemi, sjúkrahúsinu Vogi
  • María Svava Snæfells, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Bjarnrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sjúkrahúsinu Vogi
  • Kristrún Pétursdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Kristín Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sjúkrahúsinu Vogi
  • Páll Bjarnason, dagskrárstjóri Vogi
  • Þórunn Ansnes Bjarnadóttir, ráðgjafanemi SÁÁ
  • Vilborg Þórsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu vogi
  • Guðrún Eyja Erlingsdóttir, sjúkraliði, sjúkrahúsinu Vogi
  • Eyþór Jónsson, læknir, sjúkrahúsinu Vogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert