Kosið um formann eftir harðar deilur innan SÁÁ

Sjúkrahúsið Vogur.
Sjúkrahúsið Vogur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðalfundur SÁÁ fer fram í dag þar sem kosið verður um formann samtakanna. Deilur hafa verið innan SÁÁ um hríð sem komu upp á yfirborðið þegar Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, sagði starfi sínu lausu vegna óánægju með ákvörðun framkvæmdastjórnar félagsins um að segja upp þremur af sex sálfræðingum Vogs í hagræðingarskyni. 

Einar Hermannsson.
Einar Hermannsson. Ljósmynd/Aðsend

Valgerður dró síðar uppsögn sína til baka og í kjölfarið dró framkvæmdastjórn allar uppsagnir til baka. Valgerður hefur sagt að skýra þurfi hlutverk stjórnar og faglegra starfsmanna betur. 

Einar Hermannson, sem sat til skamms tíma í framkvæmdastjórn SÁÁ og hefur setið í stjórn samtakanna í 4 ár, og Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi yfirlæknir á Vogi og fyrrverandi formaður samtakanna, gefa kost á sér í formannskjörinu í dag. Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, gefur ekki kost á sér. 

Meirihluti starfsmanna meðferðarsviðs SÁÁ lagðist í síðustu viku gegn því að Þórarinn gæfi kost á sér. 57 starfsmenn af rúmlega 80 sem starfa á meðferðarsviði SÁÁ skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem segir: Við vilj­um ekki Þór­ar­inn [sic] Tyrf­ings­son aft­ur!“  Nokkr­ir starfs­menn vildu ekki láta nafn síns getið af ótta við viðbrögð Þór­ar­ins Tyrf­ings­son­ar, „sem sýn­ir kannski í ein­föld­ustu mynd­inni þá ógn­ar­stjórn sem var við lýði þegar hann var við stjórn“, að því er seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

Þórarinn Tyrfingsson.
Þórarinn Tyrfingsson. mbl.is/Eggert

Starfsmennirnir sem undirrituðu yfirlýsinguna styðja framboð Einars. Þórarinn hefur aftur á móti sagst vilja ná einingu innan SÁÁ og kveða niður þann óróleika sem einkennt hefur starf samtakanna síðustu misseri. 

Það má því búast við harðri baráttu um formanns- og stjórnarsæti á aðalfundinum sem hefst klukkan 17 á eftir. Formannskjör fer fram að fundi loknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert