Samningafundi frestað

Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa fundað stíft síðustu daga. …
Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa fundað stíft síðustu daga. Flugfreyjur sýndu samninganefndinni stuðning í síðustu viku en áætluðum fundi sem átti að hefjast klukkan 17 í dag hefur verið frestað. mbl.is/Árni Sæberg

Samningafundi í kjaradeilu Flug­freyju­fé­lags Íslands og Icelanda­ir sem átti að hefjast klukkan 17 hefur verið frestað. Þetta staðfestir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is. 

Beiðni um frestun á fundinum barst frá annarri samninganefndinni en ríkissáttasemjari gat ekki veitt upplýsingar um frá hvorri nefndinni beiðnin barst. 

Þá liggur ekki fyrir hvort fundinum verði frestað til morguns eða hvort mögulega verði fundað seinna í kvöld. 

Síðasta sátta­fundi í kjara­deilunni lauk um klukkan eitt í nótt en fund­ur­inn hófst klukk­an tvö eft­ir há­degi. Lausn er ekki kom­in í deil­una en Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í bréfi sem hann sendi öllum starfsmönnum Icelandair fyrir um 10 dögum að langtímasamningar við flugstéttir verði að liggja fyrir áður en hluthafafundur félagsins fer fram næstkomandi föstudag. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert