„Vonum að það fari að hægja á þessu“

Grænu stjörn­urn­ar tákna skjálfta 3 eða stærri sem mælst hafa …
Grænu stjörn­urn­ar tákna skjálfta 3 eða stærri sem mælst hafa síðustu tvo sól­ar­hringa. Alls eru þeir 59 en tveir skjálftar, 3,3 og 3,4, hafa mælst frá miðnætti. Kort/Veðurstofa Íslands

Skjálftavirkni við mynni Eyjafjarðar er aftur að aukast eftir heldur rólega nótt. „Það leit út fyrir að það væri að hægja verulega á þessu þangað til klukkan sjö í morgun, þá virðist hafa komið önnur hviða,“ segir Einar Hjör­leifs­son, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands, í samtali við mbl.is. 

Um klukkan hálfníu mældist jarðskjálfti 2,9 að stærð, klukkan 10 varð skjálfti 3,3 að stærð og var það fyrsti skjálftinn frá miðnætti sem mældist stærri en 3. Stundarfjórðungi síðar mældist skjálfti af stærðinni 3,4. Frá miðnætti hafa um 540 skjálftar mælst. 

„Þetta segir okkur að jarðskjálftahrinan er enn í gangi. Flestir eru viðbúnir stærri skjálfta en við vonum að það fari að hægja á þessu hvað úr hverju,“ segir Einar.  

Náttúruvársérfræðingar Veðurstofu Íslands og almannavarnir koma saman á fundi eftir hádegi þar sem farið verður yfir skjálftavirknina á Norðurlandi hingað til og hvaða sviðsmyndir viðbragðsaðilar sjá fyrir sér í framhaldinu. Óvissustig almannavarna vegna skjálftavirkni á Norðurlandi er enn í gildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert