Kjósa úr bílnum inni í tjaldi

Kjósendur verða að skrifa á blað nafn þess sem hann …
Kjósendur verða að skrifa á blað nafn þess sem hann vill kjósa og sýna kjörstjóra.

Ákveðið hefur verið að aðstaða fyrir þá sem eru í sóttkví vegna COVID-19 og vilja greiða atkvæði í forsetakosningunum í dag verði opnuð á bílastæðinu við húsnæði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára 1 í Kópavogi, þar sem unnt verður að greiða atkvæði á milli kl. 15 og 18:30.

Atkvæðagreiðslan verður með þeim hætti að kjósandi kemur einn í bifreið sinni og keyrir inn í tjald sem verður á staðnum, að því er segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Óheimilt er vegna sóttvarna að opna dyr eða glugga á bifreiðinni eða fara út úr henni. Það sem kjósendur þurfa að hafa með sér eru skilríki, blað þar sem kennitala kjósanda hefur verið skrifuð með stórum, læsilegum stöfum, og blað og penni þar sem kjósandi skrifar nafn þess sem hann vill kjósa og gera þannig kjörstjóra, sem veitir kjósanda aðstoð við atkvæðagreiðsluna, grein fyrir hvern hann vill kjósa.

Séu tveir kjósendur, sem eru í sömu sóttkví, saman í bíl verður að vera hátt skilrúm á milli svo kjósandi greiði atkvæði án þess að nokkur sjái. Ekki mega vera fleiri en tveir saman í bíl og eingöngu tveir í þeim tilvikum þegar kjósandi getur ekki ekið sjálfur.

Þeir sem greiða atkvæði með þessum hætti og þurfa að koma atkvæði sínu í norðausturkjördæmi verða að greiða atkvæði fyrir kl. 15:30 svo atkvæðið komist til skila. Kjósendur eru beðnir að hafa í huga að atkvæðagreiðslan mun taka nokkurn tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert