Samningur Norðuráls og VA í hús

Frá samningaviðræðum Norðuráls og Verkalýðsfélags Akraness.
Frá samningaviðræðum Norðuráls og Verkalýðsfélags Akraness. Ljósmynd/Aðsend

Í kvöld skrifuðu Verkalýðsfélag Akraness og Norðurál undir nýjan kjarasamning eftir tæplega 10 mánaða samningaviðræður. 

Vilhjálmur Birgisson, formaður VA, segist afar sáttur með niðurstöðuna. „Okkar helsta markmið tókst sem var að tryggja okkar fólki sömu launabreytingar og lífskjarasamningurinn kvað á um,“ skrifaði Vilhjálmur í Facebook-færslu í kvöld. 

Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. janúar 2020 sem þýðir að vaktamenn munu eiga rétt á greiðslu sem nemur um 6,9% af heildarlaunum frá 1. janúar 2020. Sú upphæð getur numið í sumum tilfellum um 500 þúsund krónum hjá vaktamönnum að því er fram kemur í færslu Vilhjálms. 

Heildarlaun vaktavinnumanns á byrjandataxta mun nema 686.000 á mánuði og er hann að hækka um 43.000 á mánuði. Heildarlaun vaktavinnumanns á 10 ára launataxta mun samkvæmt nýjum kjarasamning nema 825.000 krónum og er hann að hækka um 52.000 þúsund á mánuði.

Rétt í þessu skrifuðum við undir nýjan kjarasamning við Norðurál eftir afar langa og strangar samningaviðræður sem hafa...

Posted by Vilhjálmur Birgisson on Þriðjudagur, 13. október 2020



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert