Alls greindust 20 með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 176 í einangrun og hefur þeim fjölgað um 10 á milli daga. Aftur á móti hefur sjúklingum fækkað og eru nú 42 á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og af þeim eru 2 á gjörgæslu. Af þeim sem greindust með Covid-19 í gær voru 9 í sóttkví eða 45%. Tekin voru 899 sýni innanlands í gær og 240 á landamærunum.
Alls eru 528 í sóttkví og 634 í skimunarsóttkví og hefur fólki í sóttkví innanlands fjölgað mjög hratt undanfarna tvo daga. Í fyrradag var 291 í sóttkví, í gær 446 en í dag eru þeir eins og áður sagði orðnir 528 talsins.
Við landamærin greindust tvö smit en tveir bíða mótefnamælingar. Af þeim fjórum sem biðu mótefnamælingar í gær reyndust tveir með virkt smit en tveir með mótefni.
2 börn yngri en eins árs eru í einangrun, 7 börn á aldrinum 1-5 ára eru í einangrun og 9 börn 6-12 ára. 6 börn á aldrinum 13-17 ára er með Covid-19 í dag. Í aldurshópnum 18-29 ára er 31 smit, á fertugsaldri eru smitin nú 40 talsins en í aldurshópnum 40-49 eru 18 smit. Á sextugsaldri eru 36 með Covid og á sjötugsaldri eru 19 smit. 5 eru með Covid á aldrinum 70-79 ára, 2 á níræðisaldri og 1 einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kemur á covid.is.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 146 í einangrun og 471 er í sóttkví sem þýðir að af þeim 528 sem eru í sóttkví eru aðeins 57 í sóttkví annars staðar á landinu. Á Suðurnesjum eru 4 smitaðir en 17 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 2 smit en 10 í sóttkví. Á Austurlandi er eitt smit og og 1 í sóttkví. Á Norðurlandi eystra eru 17 smit og 19 í sóttkví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og enginn í sóttkví. Á Vestfjörðum er ekkert smit og 3 í sóttkví og á Vesturlandi eru 4 smit og 7 í sóttkví. Óstaðsettir í hús eru tveir með smit.