Framboðsfrestur til 8. apríl vegna prófkjörs

Páll Magnússon er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Páll Magnússon er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum um síðustu helgi að framboðsfrestur til þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu standi til fimmtudags 8. apríl næstkomandi kl. 15:30. Prófkjörið fer fram laugardaginn 29. maí 2021.

Skal framboð vera bundið við flokksfélaga, enda liggi fyrir skriflegt samþykki um að viðkomandi gefi kost á sér. Auk þess þurfa að liggja fyrir skrifleg meðmæli 20-40 flokksfélaga sem búsettir eru í kjördæminu, segir í tilkynningu.

Eyðublöð fyrir framboð, skipulags- og prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins auk nánari upplýsinga um prófkjörið er hægt að nálgast á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og á heimasíðu flokksins www.xd.is.

Ásmund­ur Friðriks­son, Páll Magnús­son og Vil­hjálm­ur Árna­son eru þing­menn Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi og all­ir ætla þeir að bjóða sig fram til áfram­hald­andi þing­setu. Alls eru tíu þing­menn í kjör­dæm­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert