Haraldur Briem vinnur skýrslu um leghálsskimanir til Alþingis

Haraldur Briem.
Haraldur Briem. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvaralæknir, hefur fallist á beiðni Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi. 

Gerð skýrslunnar er í samræmi við beiðni Alþingis, en Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, var flutningsmaður beiðninnar. 

Skýrslubeiðendur óskuðu eftir því að skýrslan yrði unnin af óháðum aðila og varð niðurstaða ráðherra sú að leita til Haraldar um verkefnið. Óskað hefur verið eftir framlengdum tímafresti á skilum skýrslunnar til þingsins. Gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin til afhendingar í lok fyrstu viku júnímánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert