Reykjavíkuryfirlýsing undirrituð í Hörpu

Guðlaugur Þór Þórðarson og Sergei Lavrov í Hörpunni.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Sergei Lavrov í Hörpunni. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Fulltrúar norðurskautsríkjanna átta skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu í Hörpu í dag sem fékk heitið Reykjavíkuryfirlýsingin. Með henni áréttuðu þeir skuldbindingu ríkjanna til að viðhalda friði, velsæld og sjálfbærni á norðurskautinu til frambúðar.

Yfirlýsingin telur ellefu blaðsíður og í henni er stefna ráðsins skýrð og hamrað á mikilvægi rannsókna á hinum ýmsu kimum norðurskautsins.

Parísarsamkomulagið er sérstaklega nefnt og mikilvægi þess að ríkin uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert