Dæmdur ósakhæfur vegna brunans á Bræðraborgarstíg

Marek Moszcynski er ásakaður um íkveikju í fyrra með þeim …
Marek Moszcynski er ásakaður um íkveikju í fyrra með þeim af­leiðing­um að þrír lét­ust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ma­rek Moszcynski var sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins rétt í þessu fyr­ir að hafa kveikt í húsi á Bræðra­borg­ar­stíg síðasta sum­ar með þeim af­leiðing­um að þrír lét­ust. Marek er þó sakfelldur fyrir allar ákærur nema fyrir þá einstaklinga sem voru í viðbyggingu hússins, þar sem þeir voru ekki í lífshættu. 

Honum verður gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun vegna ósakhæfis og verður hann strax fluttur á réttargeðdeild í dag úr fangelsi.

Marek er gert að greiða aðstandendum þeirra þriggja sem létust í brunanum og þeir sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni um 30 milljónir króna í bætur. Málskostnaður verður greiddur úr ríkissjóði.

Marek mætti ekki sjálfur í dómssal.

Aðalmeðferð í málinu hófst í apríl en Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir vara­héraðssak­sókn­ari er sak­sókn­ari í mál­inu.

Úr dómsalnum í héraðsdómi skömmu áður en dómurinn var kveðinn …
Úr dómsalnum í héraðsdómi skömmu áður en dómurinn var kveðinn upp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ma­rek neitaði sök um mann­dráp og íkveikju við þing­fest­ingu máls­ins síðasta haust. Þrír geðlækn­ar hafa metið mann­inn ósakhæf­an og staðfestu þeir þar með fyrra mat geðlækna.

Í ákær­unni er maður­inn sagður hafa kveikt eld á gólfi í her­bergi sínu á ann­arri hæð, á tveim­ur stöðum á gólfi í sam­eig­in­legu rými á sömu hæð og und­ir stiga sem sem lá upp á þriðju hæð húss­ins. Þar kem­ur jafn­framt fram að þegar hann hafi kveikt eld­inn hafi 13 manns verið í hús­inu og var húsið orðið nær al­elda þegar slökkvistarf hófst.

Þrjú lét­ust í brun­an­um, 24 ára kona, 21 árs karl­maður og 26 ára kona. Kem­ur fram í ákær­unni að þau tvö fyrr­nefndu hafi lát­ist af völd­um koloxíðeitr­un­ar við inn­önd­un á reyk, en hin kon­an lát­ist þegar hún féll niður af þriðju hæð þegar hún reyndi að flýja eld­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert