Flogið með byssumanninn til aðhlynningar

Maðurinn verður fluttur til aðhlynningar.
Maðurinn verður fluttur til aðhlynningar. mbl.is

Rannsóknarlögregla er mætt á vettvang í Dalseli á Egilsstöðum þar sem lögregla skaut vopnaðan mann fyrr í kvöld. Maðurinn verður fluttur til aðhlynningar í Reykjavík með sjúkraflugi.

Maðurinn var skotinn í kviðinn af lögreglu eftir að hafa gengið berserksgang í götunni og neitað að sleppa vopninu.

Að sögn sjónvarvotts stóð skothríðin yfir í rúman hálftíma en á meðan hafði sjónarvotturinn ásamt fjölskyldu sinni falið sig á bak við eldhúseyju í miðju húsinu og beðið eftir að skothríðinni linnti. 

Lögreglu- og sjúkrabílar hafa núna yfirgefið vettvang á meðan rannsókn á vettvangi fer fram. Götunni var lokað í kjölfar aðgerða lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert