Hvetur fólk til þess að halda ró sinni

Þorgeir segir ekkert benda til þess að Egilsstaðir séu minna …
Þorgeir segir ekkert benda til þess að Egilsstaðir séu minna öruggir eftir atvik vikunnar. Ljósmyndir/ Aðsend mynd og Gunnar Gunnarsson

Séra Þorgeir Arason, sóknarprestur Egilsstaðaprestakalls, segir bæjarfélagið sannarlega slegið eftir að lögregla skaut og særði vopnaðan mann í íbúðahverfi á Egilsstöðum í fyrrakvöld. Mikilvægt sé að fólk hugi að orðum sínum þegar atvik af þessu tagi séu til umræðu.

„Gróa á Leiti er stundum farin af stað í miklu tilgangsleysi og getur valdið miklu tjóni áður en við er litið,“ segir Þorgeir en margir leituðu til hans eftir atburði kvöldsins.

Vonar að fólk hugi að andlegri heilsu

Hann segist vona að íbúar í grenndinni hugi vel að líðan og tilfinningum sínum á næstu dögum og verði ófeimnir við að leita sér aðstoðar telji þeir þörf á. „Sem betur fer hefur orðið heilmikil vakning í samfélaginu gagnvart því að það sé engin skömm að því að leita sér hjálpar nema síður sé.

Að leita sér aðstoðar við sinni vanlíðan í kjölfar áfalla og í ýmsum erfiðleikum lífsins,“ segir Þorgeir og bætir við að áfallið sé sérstaklega mikið í bæjarfélagi af þessari stærð:

„Hér er um að ræða úthverfi í ákaflega friðsælu samfélagi. Bæjarfélag sem er undir venjulegum kringumstæðum ákaflega friðsælt og öruggt.“ Þorgeir segir það mikilvægt að minna á að halda stillingu þegar málin eru rædd við börn.

„Þá þarf að leggja áherslu á það að þrátt fyrir allt bendi allt til þess að öryggið sé í fyrirrúmi hérna,“ segir Þorgeir sem hrósar viðbragði lögreglu. „Hún náttúrulega sinnir sínu hlutverki alveg gríðarlega vel, sem er að verja borgarana.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert