Flekinn fari af stað í smærri brotum

Líklegt er að stóri flekinn í jaðri skriðusársins við Búðará …
Líklegt er að stóri flekinn í jaðri skriðusársins við Búðará fari af stað í smærri brotum fremur en allur í einu, að því er greint frá í tilkynningu frá Almannavörnum. Ljósmynd/Björgunarsveitin Ísólfur

Enn mælast hreyfingar í hlíðinni á Seyðisfirði milli skriðusársins frá desember 2020 og Búðarár. Vegna þess hversu brotinn hryggurinn er telst líklegt að hann fari af stað í smærri brotum fremur en allur í einu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Í tilkynningunni segir að unnið sé að útreikningum á því hvort leiðigarðar og safnþró taki við því efni sem óstöðugt er í hlíðinni, jafnvel þó það fari allt í einu. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir strax eftir helgi og verður ákvörðun um afléttngu rýmingar tekin.

Þá er vatnshæð hætt að hækka í öllum borholum í hlíðinni nema einni eftir rigninguna á fimmtudag og tekið að lækka í flestum þeirra. Lítil sem engin breyting er merkjanleg á vatnshæð í holunum eftir rigninguna frá í gær. Ekki er gert ráð fyrir úrkomu að nýju á Seyðisfirði fyrr en á miðvikudag.

Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar.

Öll óviðkomandi umferð um svæðið óheimil

Herðubreið verður opin í dag frá klukkan 14 til 16 líkt og verið hefur. Fulltrúi félagsþjónustu Múlaþings verður þar sem og lögregla til að aðstoða og svara spurningum íbúa.

Ekki er gert ráð fyrir að íbúar geti snúið til síns heima fyrr en eftir helgi. Þá er öll óviðkomandi umferð um skriðusvæðið óheimil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert